Bloggfærslur mánaðarins, maí 2011

Kynningarfundur vegna golfskólans

Richard Hughes vel klæddurBarna- og unglingaráð Golfklúbbs Sauðárkróks boðar til kynningarfundar vegna golfskólans miðvikudaginn 1. júní n.k.

Allir þeir sem að ætla að vera með í golfskólanum í sumar mæti kl.17:00 á æfingasvæðið og hafi með sér golfsettin sín, einnig verður hægt að fá lánaðar kylfur.

Það verður tekin klukkutíma æfing og síðan færum við okkur upp í golfskálann kl.18:00 og þá væri gott að foreldrarnir bættust í hópinn.

Einnig er hægt að sleppa æfingunni og mæta bara beint á fundinn kl.18:00.

Golfkennarinn okkar í sumar, Richard Hughes, stjórnar æfingunni og hann ætlar síðan að fara yfir starfið í sumar.

Eins og áður hefur komið fram þá verður golfskólinn starfræktur frá 7.júní og fram í ágúst mánudaga til fimmtudaga ( báðir dagar meðtaldir ).

Forráðamenn klúbbsins verða líka á fundinum og fara yfir starfsemi klúbbsins í sumar.

Við viljum hvetja alla til að mæta á þennan kynningarfund okkar.


Golfkennsla - upplýsingar

Netfangið hjá Richard Hughes golfkennara er grhgolfpro@yahoo.co.uk - sendið honum upplýsingar um markmið og væntingar sumarsins.

Minni svo bara á næstu æfingar. Miðvikudagur 25.maí kl.17-19 og sunnudaginn 29.maí kl.13-15


Golfskólinn 2011 - upplýsingar

Við viljum benda á að það er búið að setja inn nýjar upplýsingar um golfskólann og starfið hér vinstra megin á síðunni undir  "Golfskólinn". Þar er komið nýtt skjal - "Golfupplýsingar 2011".  Endilega kynnið ykkur það sem þar er að finna.


Aukaæfing

Aukaæfing verður á æfingasvæðinu miðvikudaginn 18.maí kl. 17-19.

 

Nýji golfkennarinn okkar, Richard Hughes, verður með golfæfingu miðvikudaginn 18.maí kl.17-19

Svo verður einnig æfing n.k. sunnudag kl.13.

 

Við viljum hvetja alla til að mæta.


Golfskólinn

Golfskóli Golfklúbbs Sauðárkróks hefst þriðjudaginn 7.júní n.k. og stendur fram í ágúst

8-11 ára verða mánudaga – fimmtudaga kl. 10-12

12-16 ára verða mánudaga – fimmtudaga kl. 10-15

Kennari í golfskólanum í sumar verður Gwyn Richard Hughes sem að einnig kemur til með að sjá um einkakennslu hjá klúbbnum.

Golfæfingar eru þegar hafnar og verða alla sunnudaga kl.13-15 þar til golfskólinn hefst.

 

Skráning fer fram á netfangið hjortur@fjolnet.is eða í síma 8217041.

Sumargjald í golfskólann er:

8-11 ára greiða 15.000,-

12-16 ára greiða 20.000,-

 

Unglingaráð GSS


Golfæfingar í maí

Æfing með Árna JónssyniVið ætlum að vera með golfæfingar á hverjum sunnudegi kl.13:00-15:00 út maí mánuð. Næsta æfing er því sunnudaginn 8.maí.

Golfkennarinn kemur til okkar um miðjan mánuðinn og verður vonandi með fyrstu æfinguna sunnudaginn 15.maí. Hugsanlega breytist æfingaplanið fyrir maí mánuð þá.

Golfskólinn hefst síðan formlega þriðjudaginn 7.júní.


Næsta útiæfing

Það var flott æfing í dag hjá okkur á æfingasvæðinu.

 

Árni Jónsson er hins vegar í bænum þessa dagana og hann ætlar að vera með æfingu hjá okkur þriðjudaginn 3.maí n.k. kl.17:00.

Við viljum hvetja alla að notfæra sér þetta tækifæri.

 

Látið það berast...


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband