Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2012

Púttæfingum lokið - allir á völlinn !!!

Nú hefur formlegum púttæfingum í golfskálanum verið hætt enda veðrið alveg ljómandi þessa dagana og margir farnir að spila á vellinum sem er allur að koma til.  Við viljum hvetja alla sem tök hafa á að skella sér á völlinn en minnum jafnframt á að hann er viðkvæmur og því ber að ganga vel um hann.

Við ætlum að byrja með útiæfingar á æfingasvæðinu sunnudaginn 6.maí n.k. kl.13:00.  Æfingarnar verða a.m.k. klukkustund en það fer auðvitað eftir stemmingunni. Golfkennarinn kemur svo um mánaðarmótin maí/júní til okkar.

Við ætlum svo að skoða hvort við getum ekki farið í dagsferð á einhvern golfvöll á SV- horninu í maí til að starta tímabilinu fyrir alvöru.


1.apríl mótið

Ekki voru margir sem mættu enda fermingar í gangi og allt sem því fylgir.

Við verðum ekki með æfingu næstu sunnudag enda páskadagur.

Úrslit urðu sem hér segir:

  
 Púttmótið
Arnar58
Hjörtur66
Þröstur68
Ingvi70
Hákon71
  
 Stigabraut
Hákon25
Arnar21
Hjörtur17
Þröstur16
Ingvi15
 

Ingvi sigraði síðan í Shootout


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband