Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2012

Lokamót Norðurlandsmótaraðarinnar

Lokamót Norðurlandsmótaraðarinnar verður haldið á Jaðarsvelli á Akureyri n.k. sunnudag 2. september. Skráning er á www.golf.is

Endilega fjölmenna á þetta mót.


Uppskeruhátíð 2012

Uppskeruhátíð 2012Golfklúbbur Sauðárkróks hélt uppskeruhátíð sína fyrir barna-og unglingastarf klúbbsins mánudaginn 20.ágúst s.l. í golfskálanum á Hlíðarendavelli í blíðskaparveðri 25° hiti og logn.  30 voru skráðir í golfskólann í sumar í lengri eða skemmri tíma. Þá voru einnig 8-12 krakkar í hverri viku sem tóku þátt í námskeiðum á vegum SumarTím sem fóru fram á golfvellinum milli 8 og 9:30 alla mánudaga til fimmtudaga. Flestir þeirra sem tóku þátt í golfskólanum í sumar mættu ásamt foreldrum sínum.  Að venju fengu allir viðurkenningar fyrir sumarið.  Farið var yfir helstu viðburði sumarsins og Thomas fór yfir starfið og golfkennsluna.  Síðan veitti Thomas sérstakar viðurkenningar fyrir sumarið.  Fyrir bestu ástundun nýliða hlaut Arnar Freyr Guðmundsson sérstaka viðurkenningu.  Fyrir bestu ástundun sumarsins hlaut Hákon Ingi Rafnsson sérstaka viðurkenningu.  Þá voru veittar viðurkenningar fyrir mestu framfarir í sumar en fjölmargir hafa lækkað forgjöf sína mikið í sumar.  Atli Freyr Rafnsson og Matthildur Kemp Guðnadóttir hlutu þessar viðurkenninigar.  Að endingu voru útnefndir bestu kylfingar sumarsins í golfskólanum.  Í flokki drengja hlaut Elvar Ingi Hjartarson þessa nafnbót en í flokki stúlkna var það Hekla Kolbrún Sæmundsdóttir sem var útnefnd. Að lokum var haldin heljarinnar pizzuveisla fyrir allan hópinn. Segja má að sumarið hafi gengið mjög vel á golfvellinum og veðrið lék við okkur ólíkt því sem var í fyrra. Þó klúbburinn hafi verið með erlendan þjálfara þá kom það ekki að sök í samskiptum við krakkana þar sem það voru alltaf unglingar til staðar sem aðstoðuðu og miðluðu þekkingu til krakkana frá þjálfara ef á þurfti að halda.  Það er því von klúbbsins að allir hafi haft bæði gagn og gaman af sumrinu og komi tvíefld á næsta ári í golfskólann.


Sveitakeppni drengja 15 ára og yngri

IMG 8839Golfklúbbur Sauðárkróks sendi sveit vaskra drengja til keppni í Sveitakeppni Golfsambands Íslands í flokki 15 ára og yngri sem haldin var á Jaðarsvelli dagana 17.-19.ágúst s.l. Þeir sem skipuðu sveitina voru þeir Atli Freyr Rafnsson, Elvar Ingi Hjartarson, Hákon Ingi Rafnsson, Hlynur Freyr Einarsson, Jónas Már Kristjánsson og Pálmi Þórsson.  20 lið voru mætt til leiks í þessa keppni.  Fyrirkomulagið er þannig að fyrsta daginn er leikinn höggleikur sem ræður því í hvaða riðli sveitin keppir næstu tvo daga. Í hverri umferð eru 4 kylfingar sem spila en 2 hvíla.  Úrslitin úr höggleiknum voru þannig að Elvar Ingi lék á 78 höggum, Hlynur Freyr á 80 höggum og Jónas Már á 86 höggum og það voru þeirra skor sem töldu. Atli Freyr spilaði einnig í höggleiknum en hans skor taldi ekki, en í höggleiknum þá telja þrjú bestu skorin hjá hverri sveit. Eftir þennan hluta keppninnar vorum við í 8-9 sæti keppninnar en 4. maður sveitarinnar sem var jöfn okkur var á betra skori og því varð niðurstaðan sú að sveitin lenti í 9.sæti og því í C riðli, en 4 sveitir eru í hverjum riðli. Á laugardegi og sunnudegi var síðan fyrirkomulagið holukeppni þar sem leiknir eru 3 leikir í hverri umferð þ.e. tveir leikmenn úr hverri sveit spila svokallaðan fjórmenning og hinir tveir spila sinn hvorn tvímenningsleikinn.  Byrjað var á að spila við Nesklúbbinn og þar unnu Hlynur Freyr og Pálmi sinn leik í fjórmenningsleiknum en báðir tvímenningsleikirnir hjá Elvari Inga og Jónasi Má töpuðust.  Seinni leikurinn á laugardeginum var á móti Golfklúbbi Hveragerðis og þar sigrðaði Elvar Ingi í sínum leik en Atli Freyr tapaði í hinum tvímenningsleiknum, þá tapaðist einnig fjórmenningsleikurinn hjá Hlyni Frey og Hákoni Inga.  Báðir leikirnir þennan dag töpuðust því með einum vinningi gegn tveimur. Á sunnudeginum voru einnig spilaðar tvær umferðir.  Byrjað var á því að spila við nágranna okkar á Dalvík og Ólafsfirði sem voru með sameiginlega sveit.  Þessi leikur var klárlega sá besti af okkar hálfu í keppninni enda þekkjast kylfingar þessara sveita mjög vel.  Jónas Már og Atli Freyr spiluðu fjórmenninginn, en Elvar Ingi og Hlynur Freyr spiluðu sinn hvorn tvímenningsleikinn.  Allar viðureignir í þessum leik voru mjög spennandi en að lokum var landað sigri í öllum leikjunum.  Seinni leikurinn á sunnudeginum var gegn b sveit Golfklúbbs Akureyrar.  Þar léku í fjórmenningi þeir Atli Freyr og Pálmi, en í tvímenningnum léku þeir Hlynur Freyr og Elvar Ingi.  Í þessum leik var Hlynur Freyr sá eini sem landaði sigri en hinir leikirnir töpuðust.  Sveit GSS varð því í 14. sæti í þessari keppni.  Það var virkilega gaman að fylgjast með þessari keppni og allir keppendur voru að spila mjög vel og það er mikil sprenging í unglingagolfi um land allt.

Fjölmargar myndir úr æfingahring drengjanna er að finna hér á myndasíðunni


Uppskeruhátíð

Viljum bara minna á uppskeruhátíð golfskóla Golfklúbbs Sauðárkróks verður á morgun mánudaginn 20.ágúst kl.17:00 í golfskálanum.

 

Við viljum hvetja alla til að mæta – allir fá glaðning

 

Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnunum

 


Meistaramót byrjenda

Meistarmót byrjenda GSS var haldið mánudaginn 13.ágúst á Hlíðarendavelli.  5 þátttakendur mættu til leiks að þessu sinni en það voru þau Helgi Hrannar Ingólfsson, Maríanna Ulriksen, Hildur Heba Einarsdóttir, Telma Ösp Einarsdóttir og Anna Karen Hjartardóttir.  Eftir skemmtilega keppni var það Telma Ösp sem stóð uppi sem sigurvegari, í öðru sæti varð Maríanna Ulriksen, í þriðja sæti varð Hildur Heba, fjórði varð síðan Helgi Hrannar og í því fimmta varð síðan Anna Karen.

Hægt er að sjá myndir frá verðlaunaafhendingu á myndasíðunni hér til hliðar


Byrjendamót og uppskeruhátíð

Vildi bara minna á að byrjendamót barna og unglinga verður haldið n.k. mánudag 13.ágúst og hefst kl.10:00.

Höggleikur verður leikinn í einum opnum flokki – 9 holur af rauðum teigum - og verðlaun fyrir 3 efstu sætin og jafnvel eitthvað meira…..

Gott væri að senda mér upplýsingar um skráningu í það – svo þarf að mæta a.m.k. kl.9:45.

Verðlaunaafhending verður að móti loknu.

 

Uppskeruhátíðin verður síðan mánudaginn 20.ágúst og hefst hún kl.17:00 í golfskálanum.

Við viljum hvetja alla sem hafa verið í golfskólanum í sumar að mæta því allir fá glaðning J

 

Svo er náttúrulega bongóblíða alla daga þó lognið mætti fara hægar yfir !

Það er því um að gera að spila og æfa eins og hægt er….


3.móti Norðurlandsmótaraðarinnar á Ólafsfirði lokið

3.mótið í Norðurlandsmótaröð barna og unglinga var haldið á Skeggjabrekkuvelli á Ólafsfirði þriðjudaginn 31.júlí - S1 mótið. Um 80 þáttakendur voru í þessu móti. Að venju fór hópur frá Golfklúbbi Sauðárkróks á mótið. Það voru þau Sigríður Eygló Unnarsdóttir, Aldís Ósk Unnarsdóttir, Hekla Kolbrún Sæmundsdóttir, Matthildur Kemp Guðnadóttir, Hildur Einarsdóttir, Thelma Einarsdóttir, Arnar Geir Hjartarson, Hlynur Freyr Einarsson, Pálmi Þórsson og Elvar Ingi Hjartarson. Þau stóðu sig öll mjög vel en til verðlauna unnu eftirfarandi: í flokkum 17-18 ára sigrðaði Arnar Geir Hjartarson og Sigríður Eygló Unnarsdóttir varð í 2.sæti. í flokki 15-16 ára varð Aldís Ósk Unnarsdóttir í 3.sæti og í flokki 14 ára og yngri sigraði Matthildur Kemp Guðnadóttir. Hægt er að sjá myndir hér á myndasíðunni. Þá er einnig búið að uppfæra stigagjöfina á síðu mótaraðarinnar nordurgolf.blog.is.  Síðasta mótið í mótaröðinni verður síðan á Akureyri sunnudaginn 2.september en þar verða jafnfram krýndir Norðurlandsmeistarar í öllum flokkum.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband