Starfsárið í hnotskurn

Skýrsla barna- og unglinganefndar til stjórnar GSS vegna ársins 2011

 

Barna-og unglinganefnd GSS skipuðu Hjörtur Geirmundsson, Árný Lilja Árnadóttir, Kristján Jónasson og Kári H. Árnason.   Þess ber þó að geta að makar nefndarmanna þau Katrín, Rafn Ingi, Valgerður og Margrét  tóku ekki síður þátt í starfi nefndarinnar.  Nefndin var óbreytt á milli ára.

Þjálfari sumarsins var Gwyn Richard Hughes og kom hann til okkar um miðjan maí mánuð og voru tvær æfingar í viku út maí mánuð.  Útiæfingar höfðu hins vegar hafist seinni partinn í apríl í umsjá Árnýjar og Hjartar.  Arnar Geir Hjartarson og Sigríður Eygló Unnarsdóttir voru til aðstoðar í golfskólanum í allt sumar og sáu alfarið um krakkana sem að komu í gegnum SumarTím en þau hafa aldrei verið fleiri, en í sumar, var fullbókað á öll námskeiðin.  Það er von okkar að þessi námskeið skili okkur fleiri iðkendum í golfskólann þegar fram líða stundir.

Með tilkomu Richards golfkennara teljum við að gæði kennslunnar hafi aukist til muna og kom hann með  ýmsar nýjar leiðir inn í þjálfunina.  Hann lagði mikla áherslu á andlega þáttinn,  , leikskipulag ofl.

 

Við höfðum ekki neina inniaðstöðu í vetur og er það ekki nógu gott.  Við fórum hins vegar í heimsókn til Dalvíkur í febrúar og vorum þar dagpart í glæsilegri inniaðstöðu þeirra,  Árni Jónsson aðstoðaði okkur og leiðbeindi. Um páskana fór  hluti iðkenda til æfinga í Boganum á Akureyri og í inniaðstöðu Golfklúbbs Akureyrar þar sem að Heiðar Davíð Bragason og Ólafur Gylfason höfðu valið svokallað norðurlandsúrval til séræfinga.  Þetta er afrekshópur sem að vinna á með skv. afreksstefnu GSÍ og Heiðar Davíð stýrir fyrir Norðurland.

 

Golfskólinn byrjaði síðan 7. júní hjá okkur og var hann með því sniði að yngstu þátttakendurnir voru frá kl. 10 - 12 mánudaga – fimmtudaga, en þau eldri voru til a.m.k. 15 á daginn.  Arnar og Sigríður stýrðu golfskólanum þá daga sem að Richard var ekki með okkur

Um 30 þátttakendur voru í golfskólanum þetta árið en  um 30 komu í gegnum SumarTím að auki.  Það var því oft líf og fjör á vellinum í sumar.

 

Norðurlandsmótaröðin var  haldin eins og árið á undan með óbreyttu sniði.

Fyrsta mótið í Norðurlandsmótaröð barna og unglinga var haldið á Dalvík sunnudaginn 26.júní.  Golfklúbbur Sauðárkróks ( GSS ) var með 17 keppendur á mótinu sem er mjög glæsilegt og stóðu þau sig öll með mikilli prýði, bæði utan vallar sem innan.  Hluti keppenda hafði tekið þátt í golfævintýri sem að haldið var dagana á undan hjá Dalvíkingum.  Nokkrir kylfingar GSS hlutu verðlaun á mótinu.  Ingvi Þór Óskarsson varð í öðru sæti í flokki 17-18 ára eftir að hafa tapað bráðabana um 1. sætið.  Þröstur Kárason tapaði í bráðabana um 3.sætið í flokki 15-16 ára.  Matthildur Kemp Guðnadóttir varð í 3.sæti í flokki 14 ára og yngri. William Þór Eðvarðsson sigraði í flokki 12 ára og yngri.  Þá varð Viktor Kárason í 2.sæti í byrjendaflokki.  Pálmi Þórsson fékk  nándarverðlaun.

Nýprent mótið okkar var haldið 4. júlí og var það í 5. skipti.  Mjög góð mæting var á mótið að venju.  Fjölmargir  tóku þátt í undirbúningi fyrir mótið og tókst það mjög vel í alla staði.  Ber að þakka öllum þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum, stjórnarfólki, foreldrum og öðrum  sem að voru að störfum allan daginn, bæði í skála og úti á velli.  Þetta mót var svo sannarlega okkur til sóma.  Okkar kylfingar stóðu sig mjög vel.  Arnar Geir var Nýprentsmeistari í strákaflokknum og sigraði jafnframt í flokki 15-16 ára, Ingvi Þór varð í 2. sæti í flokki 17-18 ára. Sigríður Eygló varð í 3. sæti í 15-16 ára flokknum og Aldís Ósk í 2. sæti í flokki 14 ára og yngri.  Sölvi Björnsson varð í 3. sæti í flokki 12 ára og yngri en Viktor Kárason varð 3. í byrjendaflokknum.   Við tókum  upp á þeirri nýbreytni að veita verðlaun fyrir flesta punktana í mótinu. Þar varð Hlynur Freyr hlutskarpastur í drengjaflokknum.  Þá fengu Arnar Geir og Elvar Ingi nándarverðlaun í sínum flokkum. Öll úrslit í mótinu er að finna á bloggsíðunni okkar http://gss.blog.is/blog/gss/entry/1177512/

 

Opna S1 mótið á Ólafsfirði var haldið þriðjudaginn 19. júlí. Að venju sendi Golfklúbbur Sauðárkróks fjölmarga keppendur til leiks í flestum flokkum.

Bestum árangri náðu þau Arnar Geir Hjartarson, sem varð í öðru sæti í 15-16 ára flokknum, Aldís Unnarsdóttir, sem varð í öðru sæti í 14 ára og yngri flokknum eftir að hafa sigrað í bráðabana um það sæti. Þá varð Viktor Kárason í 3. sæti í flokki byrjenda. Í vippkeppninni urðu síðan Hákon Ingi Rafnsson og Hekla Kolbrún Sæmundsdóttir hlutskörpust í sínum flokkum.

Síðasta mótið í Norðurlandsmótaröðinni þetta árið var Greifamótið sem að haldið var á  Akureyri sunnudaginn 4.september. Að venju mætti  góður hópur frá Golfklúbbi Sauðárkróks og stóðu þau sig með ágætum. Í lok móts var tilkynnt um Norðurlandsmeistara og hægt er að sjá allar upplýsingar um það á nordugolf.blog.is.

Bestum árangri á þessu móti náðu þau Matthildur Kemp Guðnadóttir sem sigraði í flokki 14 ára og yngri, Arnar Geir Hjartarson sem varð í 3.sæti í flokki 15-16 ára og Wiiliam Þór Eðvarsson sem varð í 3. sæti í flokki 12 ára og yngri. Þá hlaut Hákon Ingi Rafnsson nándarverðlaun í flokki 12 ára og yngri

 

 

Meistaramót barna og unglinga var  haldið dagana 5.-7.júlí.  Flokkar 12 ára og yngri, 13-14 ára og 15-16 ára spiluðu  54 holur eða 3 x 18. Úrslit urðu þessi:

 

12 ára og yngri drengir:

Högg

1. William Þór Eðvarðsson

300

2.Sölvi Björnsson

325

3.Hákon Ingi Rafnsson

373

   

13-14 ára drengir:

 

1.Elvar Ingi Hjartarson

247

2.Arnar Ólafsson

270

3.Atli Freyr Rafnsson

273

   

15-18 ára drengir:

 

1.Arnar Geir Hjartarson

241

2.Ingvi Þór Óskarsson

252

3.Þröstur Kárason

277

   

Stúlkur

 

1.Sigríður Eygló Unnarsdóttir

272

2.Aldís Ósk Unnarsdóttir

294

3.Matthildur Kemp Guðnadóttir

304

 

 

Kylfingar frá Golfklúbbi Sauðárkróks tóku  þátt í Íslandsmótinu í holukeppni sem  fór fram í Borgarnesi og Íslandsmótinu í höggleik í Grafarholti í Reykjavík.  Þá fóru  nokkrir  á Unglingalandsmót UMFÍ á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina.

Okkar keppendur stóðu sig með  sóma á öllum þessum mótum.

 

Golfskólanum lauk síðan formlega 15.ágúst.

 

Sveitakeppnir GSÍ fóru  fram 19-21 ágúst. Stúlkurnar kepptu í flokki 18 ára og yngri í Leirunni í  Reykjanesbæ og voru 5 sveitir í  þeirra flokki.  Strákarnir kepptu á Flúðum í flokki 15 ára og yngri. Þar voru hvorki fleiri né færri en 23 sveitir skráðar til leiks.

 

Eftirtalin voru valin fyrir hönd klúbbsins:

 

Stúlkur:

Aldís Ósk Unnarsdóttir

Hekla Kolbrún Sæmundsdóttir

Matthildur Kemp Guðnadóttir

Sigríður Eygló Unnarsdóttir

Liðsstjóri: Unnar Ingvarsson

 

Strákar:

Arnar Ólafsson

Atli Freyr Rafnsson

Elvar Ingi Hjartarson

Hlynur Freyr Einarsson

Jónas Már Kristjánsson

Pálmi Þórsson

Liðsstjóri: Hjörtur Geimundsson

 

Stelpurnar spiluðu einungis holukeppni og enduðu í 4. sæti.

Strákarnir spiluðu höggleik á föstudeginum og voru 16. sæti að honum loknum. En eftir holukeppnina á laugardegi og sunnudegi náðu þeir að klífa upp um 1 sæti og enduðu því í 15. sæti.

Við áttum þarna mjög skemmtilega daga. Foreldrar fylgdu  okkar keppendum og studdu dyggilega eins og í öðrum mótum sumarsins.

Ítarleg frásögn frá mótum sumarsin er að finna á bloggsíðu unglingastarfsins;  stúlkurnar á: http://gss.blog.is/blog/gss/entry/1186439/ og strákarnir á: http://gss.blog.is/blog/gss/entry/1186441/

Uppskeruhátíð var  haldin 23. ágúst í golfskálanum og voru þar veittar viðurkenningar fyrir árangur sumarsins. Richard fór yfir starfið  og  hvernig kylfingar geta haldið áfram að bæta sig í vetur, en hann hefur fullan hug á því að vera í sambandi við krakkana í vetur og  koma aftur næsta sumar.

Viðurkenningar sumarsins:   Hákon Ingi Rafnsson  var með bestu mætinguna í golfskólanum þetta sumarið.  Þriðjudagsmótaröðina  vann Sigríður Eygló Unnarsdóttir og holukeppnina  Arnar Geir Hjartarson.  Viðurkenningar fyrir mestu framfarirnar hlutu  Hekla Kolbrún Sæmundsdóttir og Pálmi Þórsson. Að lokum voru bestu kylfingar sumarsins krýndir.  Það voru  Aldís Unnarsdóttir og Hlynur Freyr Einarsson sem að hlutu nafnbótina að þessu sinni.

Sunnudaginn 18.  september fór hópur unglinga og foreldra á Skagaströnd þar sem  spiluð var bændaglíma.  Skipt var í tvö lið og spilaður 9 holu höggleikur.  Lognið kom úr suðri og fór frekar hratt yfir og gerði sumum kylfingum erfitt fyrir.  Völlurinn var  í flottu standi,  skemmtilegur að venju og allir skemmtu sér hið besta.

Bændur að þessu sinni voru þeir Arnar Geir og Þröstur og drógu þeir sér lið.  Arnar fékk lið nr. 1 og Þröstur nr. 2 og voru þau þannig skipuð:

Lið 1:

Hlynur, Atli, Hákon Rabbi, Einar og Arnar

 

Lið 2:

Elvar, Jónas, Pálmi, Hjörtur, Kristján og Þröstur.

 

Eftir harða rimmu þá stóð lið 1 uppi sem sigurvegari.

Lið 1 = 308 högg

Lið 2 = 325 högg.

Að lokinni keppni var brunað aftur á Krókinn í golfskálann þar sem að pizza var pöntuð og horft á bíómynd. Dagurinn var skemmtilegur. Góður endir á góðu sumri.

Fjáraflanir sumarsins  fólust m.a. í ökubasar í Skagfirðingabúð í ágúst  sem  gekk mjög vel.  Við söfnuðum  flöskum meðal klúbbfélaga eins og undanfarin ár.  Þá erum við ennþá með í sölu kyngimagnað uppskriftakver þar sem að lykiluppskriftum klúbbfélaga var safnað saman í eina bók og seld á vægu verði.  Nefndin vill þakka öllum sem að tók þátt í þessum fjáröflunum okkar og ekki síst þeim sem að keyptu af okkur þennan varning.

 

Við höldum úti öflugri heimasíðu, gss.blog.is  þar sem að við komum á framfæri tilkynningum um starfið auk þess að við birtum fréttir um árangur okkar fólks í golfinu.  Þá er einnig komið þar inn allnokkuð myndasafn sem spannar starfið á undanförnum árum.  Ef að einhverjir hafa skemmtilegar myndir úr unglingastarfi undanfarinna ára þá væru þær vel þegnar inn á þessa síðu.

 

Við viljum þakka öllum þeim fjölmörgu sem að komu að starfinu s.l. sumar, stjórn klúbbsins sem að studdi okkur dyggilega, foreldrum og öðrum sjálfboðaliðum. Eins og máltækið segir „margar hendur vinna létt verk“ og það á svo sannarlega við hjá okkur.  Öflugt og óeigingjarnt starf sjálfboðaliða skilar því að við getum haldið úti öflugu barna-og unglingastarfi og vona ég að svo verði áfram um ókomin ár – golfklúbbnum til heilla.

Þá ber sérstaklega að þakka golfkennaranum okkar honum Richard Hughes fyrir hans góða starf í sumar sem að skilaði sér í miklum framförum hjá öllum okkar kylfingum sem að stunduðu golfið af kappi.  Að fá slíkan fagmann var sannarlega hvalreki fyrir okkur og lyfti starfinu upp á annað plan miðað við undanfarin ár.  Að vera með golfkennara nánast alla daga sumarsins eru  forréttindi m.v. það sem hefur verið   undanfarin ár.


Bændaglíma á Skagaströnd

Hópurinn tilbúinn

Sunnudaginn 18. september fór hópur unglinga og foreldra á Skagaströnd þar sem að spiluð var bændaglíma. Skipt var í tvö lið og spilaður 9 holu höggleikur. Lognið kom úr suðrinu og fór frekar hratt yfir og gerði sumum kylfingum erfitt fyrir. Völlurinn var hins vegar í flottu standi og skemmtilegur að venju og allir skemmtu sér hið besta.

Bændur að þessu sinni voru þeir Arnar Geir og Þröstur og drógu þeir sér lið.

Arnar fékk lið nr. 1 og Þröstur nr. 2 og voru þau þannig skipuð:

Lið 1:

Hlynur, Atli, Hákon Rabbi, Einar og Arnar

Lið 2:

Elvar, Jónas, Pálmi, Hjörtur, Kristján og Þröstur.

Eftir harða rimmu þá stóð lið 1 uppi sem sigurvegari.

Lið 1 = 308 högg

Lið 2 = 325 högg.

Að lokinni keppni var brunað aftur á Krókinn í golfskálann þar sem að pizza var pöntuð og horft á bíómynd. Dagurinn var skemmtilegur og góður endir á góðu sumri.

 


Haustferð

Haustferðin okkar að þessu sinni verður n.k. sunnudag 18.september.Hópurinn tilbúinn á 1. teig

Við ætlum að skella okkur á Skagaströnd og spila 9 holur, framhaldið er síðan óráðið, fer allt eftir mætingu og stemmingu.

Mæting við golfskálann kl.10:00.

Mynding er frá síðustu ferð okkar á Skagaströnd 2009


Greifamótið á Akureyri

Þá er lokið síðasta mótinu í Norðurlandsmótaröðinni þetta árið en það var Greifamótið sem að haldið var á Akureyri sunnudaginn 4.september.  Að venju mætti þónokkur hópur frá Golfklúbbi Sauðárkróks og stóðu sig með ágætum. í lok móts var síðan tilkynnt um Norðurlandsmeistara og hægt er að sjá allar upplýsingar um að inni á nordugolf.blog.is.

Bestum árangri á þessu móti náðu þau Matthildur Kemp Guðnadóttir sem að sigraði í flokki 14 ára og yngri, Arnar Geir Hjartarson sem varð í 3.sæti í flokki 15-16 ára og Wiiliam Þór Eðvarsson sem að varð í 3. sæti í flokki 12 ára og yngri.  Þá hlaut Hákon Ingi Rafnsson nándarverðlaun í flokki 12 ára og yngri. Heildarniðurstöðu í öllum flokkum er hægt að sjá á www.golf.is.

Hægt er áð sjá nokkrar myndir frá mótinu hér á myndasíðunni.


Lokamótið í Norðurlandsmótaröðinni

Lokamótið í Norðurlandsmótaröðinni fer fram á Jaðarsvelli á Akureyri sunnudaginn 4. september n.k.

Við viljum hvetja alla til að skella sér á Akureyri og ljúka þar með þessari mótaröð með glæsibrag.  Opnað hefur verið fyrir skráningu á www.golf.is. Stöðuna í stigakeppninni er hægt að sjá á nordurgolf.blog.is


Uppskeruhátíðin

IMG 7609Uppskeruhátíðin var haldin í dag í golfskálanum og voru þar veittar viðurkenningar fyrir árangur sumarsins.

Richard fór yfir starfið í sumar og fór yfir það hvernig kylfingar geta haldið áfram að bæta sig í vetur, en hann hefur fullan hug á því að vera í sambandi við krakkana í vetur og að koma aftur næsta sumar ef að nokkur kostur er á.

En þá var komið að viðurkenningum sumarsins. Fyrir það fyrsta var það Hákon Ingi Rafnsson sem að var með bestu mætinguna í golfskólanum þetta sumarið.  Þriðjudagsmótaröðina sigraði Sigríður Eygló Unnarsdóttir og holukeppnina sigraði Arnar Geir Hjartarson.  Þá var komið að mestu framförunum þetta sumarið en þau hlutu þau Hekla Kolbrún Sæmundsdóttir og Pálmi Þórsson.  Að lokum voru síðan bestu kylfingar sumarsins krýndir. Það voru þau Aldís Unnarsdóttir og Hlynur Freyr Einarsson sem að hlutu nafnbótina að þessu sinni.

Golfvertíðinni er nú ekki lokið hjá okkur ennþá því að eftir er síðasta mótið á Norðurlandsmótaröðinni á Akureyri en það verður sunnudaginn 4. september.  Þá eigum við líka eftir að fara í haustferðina okkar eins og undanfarin ár og verður hún auglýst þegar nær dregur.


Sveitakeppni drengja 15 ára og yngri

CIMG5367Sveitakeppni derngja 15 ára og yngri – skýrsla liðsstjóra.

Golfklúbbur Sauðárkróks sendi 6 kylfinga til leiks í sveitakeppni 15 ára og yngri drengja sem að haldin var á Flúðum 19-21 ágúst s.l. Þeir sem að voru í sveitinn voru þeir Arnar Ólafsson, Atli Freyr Rafnsson, Elvar Ingi Hjartarson, Hlynur Freyr Einarsson, Jónas Már Kristjánsson og Pálmi Þórsson. Farið var frá Sauðárkróki fimmtudaginn 18.ágúst og keyrt á Selsvöll á Flúðum þar sem að æfingahringur var spilaður. Richard kíkti á okkur undlir lok hringsins en hann var á ferð og flugi þessa helgina þar sem að stelpurnar voru að keppa í Leirunni á Suðurnesjum.

Það var 12 manna hópur sem að fór í þessa ferð og gistum við sem fyrr í Syðra-Langholti eins og svo oft áður þegar við erum að keppa á þessum slóðum. Strákarnir fengu heilan bústað fyrir sig en foreldrarnir voru á efri hæðinni hjá Jóhannesi og Sísu í góðu yfirlæti. Kvöldkaffið hjá Sísu var að sjálfsögðu á sínum stað.

Föstudaginn 19.ágúst hófst síðan keppnin með því að spilaður var höggleikur. 22 sveitir voru mættar til leiks og í hverri umferð léku 4 keppendur en 2 hvíldu. Þeir sem að spiluðu höggleikinn voru þeir Arnar, Atli, Elvar og Hlynur. Þrjú bestu skorin töldu í þessari umferð og réðu síðan hvar í röðinni sveitirnar lentu. Eftir höggleikinn var niðurstaðan 16. sæti og við vorum í C-riðli. Keppnin var gríðarlega jöfn og voru tvö önnur lið jöfn okkur með 270 högg en besta skor hjá 4. Keppenda dugði okkur í 16.sætið. Til marks um hversu jöfn keppnin var þá munaði einungis 8 höggum á liðinu sem að varð í 10 sæti og því sem að endaði í 18 sæti eftir höggleikinn. Við vorum því í riðli með GL, GKJ-B og GHD.

Laugardaginn 20.ágúst hófst síðan holukeppnin og fyrsti leikurinn var á móti GL ( Akranes ). Jónas og Hlynur spiluðu fjórmenning, Atli Freyr og Elvar Ingi spiluðu tvímenning. Þetta lið var klárlega það langsterkasta í riðliðnum og allir leikir töpuðust. Eftir hádegið þá var spilað við GKJ-B ( Mosfellsbær ). Sama liðsskipan var í þeim leik. Elvar Ingi vann sinn leik 2/0, Atli tapaði sínum leik 4/3 og Jónas og Hlynur Freyr töpuðu 7/6.

Sunnudaginn 21.ágúst var síðan byrjað á að leika við GHD( Dalvík ). Sannkallaður nágrannaslagur þar sem keppendur þekkjast af Norðurlandsmótaröðinni. Arnar og Atli Freyr spiluðu fjórmenninginn við Friðrik og Jóhann og töpuðu 3/2, Hlynur Freyr spilaði tvímenning við Arnór og tapaði 2/1 og Elvar Ingi spilaði einnig tvímenning við Helga og sigraði 3/2. Þessir leikir voru mjög jafnir og hefðu í raun getað lent hvoru megin.

Eftir þessa riðlakeppni var því ljóst að við myndum spila um 15-16 sætið og liðið sem við mættum eftir hádegið var GO ( Golfkl. Oddur í Heiðmörk ). Jónas og Pálmi spiluðu fjórmennig og töpuðu 2/1 í mjög skemmtilegum leik þar sem þeir sýndu mikla keppnishörku eftir að hafa lent undir mjög snemma í leiknum og gáfust aldrei upp. Hlynur Freyr og Elvar Ingi sigrðu hins vegar báðir í sínum leikum 3/2 sem voru mjög jafnir og skemmtilegir allan tímann. Niðurstaðan varð því sú að við enduðum í 15.sæti af 22.sveitum. Ljóst er að á næsta ári komum við alveg tvíelfdir til leiks og helmingur sveitarinnar á eftir 1 ár í þessum aldursflokki og hinn hlutinn á eftir 2 ár. Við stefnum því að enn betri árangri á næsta ári.

Þessi helgi var mjög eftirminnileg fyrir alla sem að voru á staðnum og það var góður stígandi í þessu hjá okkur og það var óneitanlega skemmtilegri heimferðin með sigur í síðasta leiknum.


Sveitakeppni stúlkna 18 ára og yngri

Copy of DSC00779Sveitakeppni stúlkna 18 ára og yngri 2011 – skýrsla liðsstjóra

Undanfarin tvö ár hefur GSS sent lið til keppni í sveitakeppni stúlkna. Árið 2009 var keppt á Flúðum og fengu stúlkurnar þá eldskírnina , þar sem ákveðið var að sameina keppni 18 ára og yngri og 15 ára og yngri og okkar stúlkur ungar og óreyndar í keppni. Þær stóðu sig samt með mikilli prýði. Árið 2010 var sent lið til Þorlákshafnar og keppt í flokki 15 ára og yngri. Þá náðist árangur framar vonum og endaði liðið í 5 sæti. Nú í ár var ákveðið að senda lið í flokk 18 ára og yngri, þar sem stúlkurnar voru aðeins fjórar og þar af ein orðin 16 ára. Vitað var að þetta yrði erfið keppni, þar sem nokkrir af sterkustu kvenkylfingum landsins kepptu í þessum flokki og gerðum við okkur ekki háar hugmyndir um sigra, en allar voru stúlkurnar ákveðnar í að gera sitt allra besta.

Um 10 manna hópur foreldra og stúlkna lagði af stað til Keflavíkur á Leiruna og var spilaður æfingahringur á fimmtudegi. Richard golfkennari fór með stúlkunum fyrri 9 holur vallarins en varð síðan frá að hverfa til Flúða, þar sem strákarnir kepptu. Hann kom síðan aftur og var með stelpunum á laugardeginum. Gist var á Vallarsvæðinu í Gistihúsi Keflavíkur og fór þokkalega um mannskapinn.

Alls mættu 5 lið til keppni. Tvö lið frá GK og GR voru langsterkust, en gerðum við okkur vonir um að geta náð hagstæðum úrslitum gegn hinum liðunum frá GKG og Nesklúbbnum. Stúlkurnar frá GSS voru þær Aldís Ósk Unnarsdóttir, Hekla Kolbrún Sæmundsdóttir, Matthildur Kemp Guðnadóttir og Sigríður Eygló Unnarsdóttir. Sigríður var orðin 16 ára, Hekla og Aldís á 14. ári og Matthildur 13 ára.

Í fyrstu umferð snemma á föstudagsmorgni mætti sveit GSS liði Nesklúbbsins, en þær eiga greinilega við sömu erfiðleika að etja og okkar klúbbur, að vera með í sínum röðum fáar eldri stúlkur sem geta tekið þátt í svona keppni, svo sveitina skipuðu nokkrar ungar stúlkum með öðrum reyndari. Viðureignin var mjög spennandi. Þær systur, Sigríður og Aldís, kepptu einmenningsleikina en Hekla og Matthildur tvímenninginn, en til skýringar fyrir óinnvígða í golfíþróttina, þá er einn í hverju liði í tvímenningi en tveir í hverju liði í fjórmenningi, sem leika þó sama bolta til skiptis. Sigríður og Aldís náðu snemma þægilegri forystu og létu hana aldrei af hendi. Andstæðingur Sigríðar, sem er mjög góður kylfingur, var óheppinn og hitti glompur út um allan völl og Sigríður spilaði vel. Aldís sýndi enga miskun gegn andstæðingi sínum. Fjórmenningurinn var æsispennandi og tapaðist hann eftir harða baráttu á 18. holu. Frábær byrjun var því staðreynd, sigur 2-1 og höfðu foreldrarnir að orði að markmiðinu væri náð, að vinna leik í þessari erfiðu keppni.

Í annari umferð mættum við Íslandsmeisturunum í Golfklúbbi Reykjavíkur. Markmiðið var að hanga í þeim, vinna einhverjar holur og jafna einhverjar. Í sveitakeppni er uppstilling liða hálfgert lottó, því liðsstjórar vita ekki hvernig andstæðingurinn stillir upp sínu liði. Ákveðið var að öllu yrði snúið á haus. Matthildur og Hekla spiluðu einmenningsleikina en Sigríður og Aldís færu í fjórmenning. Vonin var að þar væri helst von til að ná punkti, en þrátt fyrir þessar tilfæringar voru GR stúlkur einfaldlega betri kylfingar en okkar stúlkur. Engu að síður léku okkar stelpur mjög vel. Matthildur lék t.d. gegn Sunnu Víðisdóttir sem er með ríflega 2 í forgjöf, en hún stóð sig samt eins og hetja og hékk í Sunnu lengi framanaf. Sama má segja um hinar stúlkurnar, en þrátt fyrir hetjulega barátttu varð niðurstaðan 3-0 tap.

Morguninn eftir mættum við liðið GKG. Með sigri hefði þriðja sætið í keppninni verið í augsýn, en lið Kópavogs og Garðabæjar var sterkt. Sigríður og Hekla voru í tvímenning en Aldís og Matthildur í fjórmenning. Líklega var þetta slakasti leikur okkar stúlkna, en liðsmenn GKG voru einnig að spila mjög gott golf, þær fengu fugla út um allan völl í byrjun leikjanna og náðu fljótlega þægilegri forystu og þrátt fyrir að okkar stelpur klóruðu í bakkann, var það ekki nóg og leikirnir töpuðust einn af öðrum.

Seinnipartinn var síðan leikinn síðasta viðureignin, gegn Golflkúbbnum Keili, sem var með gríðarsterkt lið með Íslandsmeistarann Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur í fararbroddi. Matthildur fékk það verkefni að kljást við hana, enda var liðinu stillt upp með það í huga. Matthildur spilaði frábært golf, fékk t.d. 3 pör á fyrstu fjórum holunum, en Guðrún Brá er ekki vön að vera mikið yfir pari golfvalla yfirleitt og spilaði á pari vallarins í leiknum. Matthildur hékk í henni, jafnaði margar holur, fékk fullt af pörum og einn fugl og hefur líklega aldrei spilað betur, en það dugði auðvitað ekki til sigurs. Sigríður spilaði hinn einmenningsleikinn og lék einnig afar vel. Hún var eina holu undir eftir 9 spilaðar og var nálægt pari, en þá tók andstæðingurinn uppá að hlaða niður fuglum og leikurinn kláraðist fljótlega. Í fjórmenningnum var það sama upp á teningnum, GK stúlkur spiluðu mjög vel og fengu par eða fugla á flestar holur. Allar stúlkurnar spiluðu glæsilegt golf, þó það nægði ekki til gegn þessu liði, sem reyndist, þegar upp var staðið vera ósigrað í keppninni og töpuðu engum leik.

Vegna fyrirkomulags keppninnar sat liðið hjá á sunnudegi og var því mótinu lokið fyrir GSS stúlkur á laugardagskvöldinu. Stelpurnar fóru í bíó og skemmtu sér vel. Niðurstaðan í mótinu varð fjórða sætið, sem er mjög góður árangur. Það sem meira er um vert voru allar stelpurnar að spila gott golf og betur en forgjöfin segir til um. Þær voru klúbbnum til sóma og skemmtu sér konunglega í blíðviðrinu í Leirunni þessa helgi.


Golfskólanum lokið, sveitakeppnir unglinga og uppskeruhátíð

Þá er golfskólanum formlega lokið þetta sumarið en völlurinn er ennþá í fínu standi svo að við hvetjum alla til að spila áfram eins og hægt er.  Við ætlum að halda uppskeruhátíð þriðjudaginn 23.ágúst n.k. kl.17:00.  Í næstu viku heldur Richard golfkennari síðan til síns heima.

Núna um helgina verður síðan sveitakeppni unglinga spiluð.

Stúlkurnar keppa í flokki 18 ára og yngri í Leirunni í Keflavík en strákarnir verða á Flúðum í flokki 15 ára og yngri, en þar eru hvorki fleiri né færri en 23 sveitir skráðar til leiks.


Íslandsmót í höggleik unglinga

Um síðustu helgi fór fram íslandsmót unglinga 18 ára og yngri á Grafarholtsvelli í Reykjavík.

Mikið fjölmenni var á mótinu og komust færri að en vildu og voru takmarkanir í flestum flokkum. Alls voru 144 þátttakendur.

3 keppendur fóru frá Golfklúbbi Sauðárkróks og stóðu sig með prýði.

Í flokki 14 ára og yngri keppti Aldís Ósk Unnarsdóttir og varð í 8.sæti.

Í flokki 15-16 ára kepptu Sigríður Eygló Unnarsdóttir og varð í 12 sæti í stúlknaflokki og Arnar Geir Hjartarson sem að varð í 15.sæti í drengjaflokknum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband