Nýprent Open - sunnudaginn 3.júlí
29.6.2011 | 11:45
Opna Nýprent mótið í golfi verður haldið sunnudaginn 3.júlí n.k.
Mótið er hluti af Norðurlandsmótaröð barna og unglinga.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
17-18 ára strákar og stelpur - 18 holur
15-16 ára strákar og stelpur - 18 holur
14 ára og yngri ára strákar og stelpur - 18 holur
12 ára og yngri ára strákar og stelpur - 9 holur
Byrjendaflokkur- strákar og stelpur spila 9 holur af sérstaklega styttum teigum ( gullteigum )
Nándarverðlaun og vippverðlaun í öllum flokkum.
Nýprent meistarar verða krýndir. Lægsta skor í 18 holu flokkum.
Aukaverðlaun verða veitt strák og stelpu sem að verða með flesta punkta í 18 holu flokkum og eru með virka forgjöf.
Súpan verður að sjálfsögðu á sínum stað og síðan verða grillaðar pylsur handa öllum í mótslok.
Opnað hefur verið fyrir skráningu á www.golf.is.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.