Golfmót á Akureyri
13.8.2008 | 14:56
Sunnudaginn 31 ágúst n.k. er fyrirhugað að halda barna- og unglingamót á Akureyri. Mótið verður með svipuðu sniði og Nýprent Open mótið og Intersportmótið á Dalvík. GSS sér um skráningu á sínum félagsmönnum og eru áhugasamir beðnir um að láta vita um þátttöku í netfangið petur@saudarkrokur.net
Mikilvægt er að láta vita eins fjótt og hægt er, hverjir ætla að fara á mótið og er æskilegt að foreldrar fari með.Mótið er frábært tækifæri fyrir krakkana til að spila á stærsta vellinum Norðanlands og þar sem Jaðarsvöllur er 18 holur, þá mun mótið væntanlega taka styttri tíma en mótin á Sauðárkróki og Dalvík.
Byrjað verður að ræsa út kl: 10:00Mótsgjald er 1.200. Vegleg verðlaun verða veitt í öllum flokkum. Að móti loknu verður pizzahlaðborð.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.