Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2011

Fórum í æfingaferð til Dalvíkur

PúttæfingVið fórum í æfingaferð á Dalvík í hið nýja og glæsilega æfingahúsnæði þeirra í GHD laugardaginn 19.febrúar.

Árni Jónsson golfkennari tók á móti okkur og fór yfir golffræðin með hópnum, og ekki veitir nú af þar sem að ekki hefur verið um neinar æfingar að ræða hjá hópnum síðan í haust.  Það var púttað, sippað, slegið í net og svo fengu allir að prófa golfherminn aðeins.

Alls fóru 11 börn og unglingar með í þessa ferð og foreldrar keyrðu hópinn eins og venjulega og voru allir ánægðir með daginn enda ekki annað hægt !

Hægt er að sjá myndir frá heimsókninni á myndasíðunni.

Við þökkum fyrir góðar móttökur sem við fengum eins og venjulega þegar við heimsækjum Dalvíkinga í tengslum við golfið.

Til hamingju með glæsilega aðstöðu GHD.

Að lokum var farið í 18 holu púttkeppni og niðurstöðurnar urðu þessar:

Arnar Geir-1
Elvar Ingi+4
Friðrik-3
Hákon+6
Hekla+5
Hjörtur-3
Hlynur+3
Jónas+5
Kristján-2
Nína+6
Pálmi+5
Rafn-3
SigríðurPar
Unnar+2


Æfingaferð á Dalvík

Unglingaráðið ætlar að efna til æfingaferðar til Dalvíkur í nýtt og glæsilegt húsnæði golfaranna þar á bæ sem að er eitt það glæsilegasta á landinu.  Ákveðið hefur verið að fara laugardaginn 19.febrúar n.k. Farið verður á einkabílum.

Við áætlum að vera komin á staðinn um kl.13:30 og vera a.m.k. 3 klst. við æfingar.

Árni Jónsson golfkennari ætlar að stjórna æfingunni og við viljum hvetja alla sem að geta að koma í þessa ferð.

Fínt er að hver og einn taki með sér 4 kylfur eða svo. 5 og 7 járn, wedge og pútter ( í góðu lagi að viðra driverinn aðeins, hvort sem að hann verður notaður eða ekki.... )

Unglingaráðið niðurgreiðir kostnað við ferðina og æfinguna en hver þátttakandi þarf aðeins að greiða 1000 fyrir æfinguna, ef að viðkomandi fær far þá er 1000 í eldsneytiskostnað.

Svo er bara að hafa með sér nesti til að geta nartað í á milli æfinga.  Áætluð heimkoma á Krókinn er síðan um kl 19:00.

Til að geta skipulagt ferðina enn frekar þá viljum við biðja þá sem að hafa áhuga að láta Hjört vita og eins foreldra sem geta farið á bílum að láta vita einnig. Í síðasta lagi á miðvikudagskvöldið 16.febrúar.

Hægt er að senda tölvupóst á hjortur@fjolnet.is eða í síma 8217041.


Fræðslu og bíókvöld

Fræðslu-og bíókvöld verður í golfskálanum á Hlíðarenda sunnudaginn 13.febrúar n.k. og hefst það kl. 19.30.

Árný ætlar að vera með fræðslu varðandi líkamsæfingar fyrir golfara til undirbúnings fyrir golfvertíðina sem að nálgast óðfluga.

Síðan verður horft á einhverja skemmtilega bíómynd.

Gos verður í boði klúbbsins en hver kemur með sitt snakk og sælgæti með sér.

Endilega fjölmennið og látið berast til allra sem að hafa áhuga.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband