Foreldrafundur þriðjudaginn 8.júní kl.18:00

Unglingaráð Golfklúbbs Sauðárkróks boðar til foreldrafundar þriðjudaginn 8.júní n.k. í golfskálanum á Hlíðarenda og hefst hann kl. 18.00.

Farið verður yfir starfið í golfskólanum í sumar og skipulag hans.Einnig verður farið yfir Golfævintýrið á Dalvík og er mjög mikilvægt að allir foreldrar þeirra sem að ætla á golfævintýrið mæti á fundinn.

Síðan er fyrsta mótið í Norðurlandsmótaröðinni sunnudaginn 13.júní og verður það haldið á Dalvík.

Allir sem að verða í golfskólanum í sumar verða síðan að vera með vasabók og blýant með sér í starfinu og viljum við benda foreldrum á að kaupa slíkt. Vasabókin þarf að komast í vasa og/eða golfpokann hjá iðkendum.

Við vonumst til að sjá sem allra flesta.

Svo viljum við einnig minna á að Örn Sölvi Halldórsson verður með golfskólann mánudaginn 7.júní frá kl.10:00 til 15:00.

Enginn golfskóli verður hins vegar á þriðjudaginn 8.júní.

Golfskólinn byrjar hins vegar formlega miðvikudaginn 9.júní kl.10:00.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband