Úrslit úr meistaramóti

Þeir krakkar sem tóku þátt í meistaramóti yngri kylfinga innan GSS stóðu sig með mikilli prýði og fjölmargir lækkuðu verulega í forgjöf. Úrslit voru eftirfarandi:

 Í byrjendaflokki voru spilaðar 9 holur í tvo daga.

1. Hákon Ingi Rafnsson 104 högg

2. Viktor Kárason 118 högg

3. Guðmar Freyr Magnússon 130 högg

Í flokki 12 ára og yngri voru spilaðar 18 holur á dag í þrjá daga og urðu úrslit sem hér segir:

1. Elvar Ingi Hjartarson 273 högg

2. Arnar Ólafsson 281 högg

3. Viðar Örn Ómarson 322 högg

Í stúlknaflokki var Matthildur Guðnadóttir ein keppenda og spilaði á 347 höggum.

Í flokki 14 ára og yngri voru einnig spilaðar 18 holur í þrjá daga og urðu úrslit þessi.

Stúlknaflokkur:

1. Hekla Kolbrún Sæmundsdóttir 349 högg

2. Aldís Ósk Unnarsdóttir 351 högg

Drengjaflokkur

1. Atli Freyr Rafnsson 300 högg

2. Hlynur Freyr Einarsson 302 högg

3. Jónas Kristjánsson 309 högg

 Loks var Sigríður Eygló Unnarsdóttir ein keppenda í stúlknaflokki 15-16 ára og spilaði á 300 höggum. Drengir í sama aldursflokki tóku þátt í meistaramóti fullorðinna og stóðu sig með mikilli prýði.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband