Laugardagurinn

Í ljósi slæmrar veðurspár á Vestur-og Suðurlandi þá höfum við ákveðið að hætta við fyrirhugaða golfferð á laugardaginn.

 

Við ætlum hins vegar að slá upp móti á Hlíðarendavelli kl.10 á laugardaginn 12.maí. Hvað við spilum margar holur og hvaða fyrirkomulag við höfum á þessu kemur bara í ljós ( fer eftir veðri og stemmingu )

Að móti loknu þá ætlum við að panta okkur pizzu og horfa jafnvel á einhverja mynd.

Gjald fyrir herlegheitin er einungis 1000 fyrir hvern þátttakanda.

 

Sjáumst öll í góðum gír á laugardaginn – völlurinn er í toppastandi.

 

Æfingastangirnar eru komnar og þið getið nálgast þær í skálanum á laugardaginn og greitt fyrir þær þar.

Settið kostar 2.500,- fyrir barna-og unglingastarfið ( fullt verð er 3.500,-). Nokkrir litir eru a.m.k. hvítt, rautt, appelsínugult, grænt og blátt.

 

http://www.toursticks.com/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband