Golfskólinn í sumar

Golfskóli Golfklúbbs Sauðárkróks hefst þriðjudaginn 5.júní n.k. og verður starfræktur mánudaga til fimmtudaga  í sumar frá kl.10 – 15 og föstudaga kl.10 - 12. Golfskólinn fyrir 7 – 11 ára  (yngsti árgangur 2005 ) verður milli kl. 10 og 12.  12 ára og eldri  verða síðan á milli kl. 10 og 15.
Þjálfari í golfskólanum alla daga í sumar verður Thomas Olsen golfkennari frá Danmörku. Honum til aðstoðar verða reynslumiklir unglingar úr klúbbnum.
Gjald er kr. 15.000 fyrir 7-11 ára og  kr. 20.000 fyrir 12-16 ára. Þetta gjald er fyrir allt sumarið og inni í því er aðgangur að vellinum fyrir sumarið.

Skráning í golfskólann er hjá Hirti Geirmundssyni – hjortur@fjolnet.is eða í síma 8217041. Hann veitir einnig  frekari upplýsingar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband