Fyrsta mótið í Norðurlandsmótaröðinni.

Fyrsta mótið í Norðurlandsmótaröðinni verður haldið sunnudaginn 26.júní n.k. á Dalvík.

Keppt verður í öllum flokkum skv. mótafyrirkomulagi mótaraðarinnar sem að er að finna hér á síðunni.

Við viljum hvetja alla kylfinga 18 ára og yngri á að fjölmenna á þetta fyrsta mót mótaraðarinnar. Flokkaskiptingin á að vera fyrir alla.

17-18 ára spila 18 holur

15-16 ára spila 18 holur

14 ára og yngri spila 18 holur*

12 ára og yngri spilar 9 holur*

Svo verður byrjendaflokkur þar sem að spilað verður á sérstökum „gullteigum“ 9 holur.

* þeir sem eru 12 ára og yngri geta valið um þessa 2 flokka.

Skráning fer fram á www.golf.is

Ef að þið lendið í vandræðum með skráningu þá hafið vinsamlega samband við starfsfólk golfskólans, en skráningu þarf að vera lokið föstudagskvöldið 24.júní.

Annað mótið í mótaröðinni verður síðan hér á Sauðárkróki sunnudaginn 3.júlí – „Nýprent open“


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband