Golfmót á Akureyri

Sunnudaginn 31 ágúst n.k. er fyrirhugað að halda barna- og unglingamót á Akureyri. Mótið verður með svipuðu sniði og Nýprent Open mótið og Intersportmótið á Dalvík. GSS sér um skráningu á sínum félagsmönnum og eru áhugasamir beðnir um að láta vita um þátttöku í netfangið petur@saudarkrokur.net

Mikilvægt er að láta vita eins fjótt og hægt er, hverjir ætla að fara á mótið og er æskilegt að foreldrar fari með. 

Mótið er frábært tækifæri fyrir krakkana til að spila á stærsta vellinum Norðanlands og þar sem Jaðarsvöllur er 18 holur, þá mun mótið væntanlega taka styttri tíma en mótin á Sauðárkróki og Dalvík.

 Byrjað verður að ræsa út  kl: 10:00

Mótsgjald er 1.200. Vegleg verðlaun verða veitt í öllum flokkum. Að móti loknu verður pizzahlaðborð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband