Sveitakeppni 16 ára og yngri drengja á Flúðum - Dagur 1

1.umferð í sveitakeppni drengja 16 ára og yngri er í gangi þessa stundina. Sveit GSS hefur lokið leik í dag. Ekki er ljóst á þessari stundu í hvaða sæti sveitin er að loknum höggleiknum þar sem fjölmargir eru ennþá að spila. En hérna koma óstaðfestar tölur hjá sveitinni. Arnar Geir lék á 88 höggum, Þorbergur á 92 höggum, Jónas á 99 höggum og Þröstur á 108 höggum. Ingi hvíldi í dag. Þrjú bestu skorin telja síðan í heildarkeppninni. Nánari fréttir koma síðar í dag. 

15.08.08 / kl. 14.55 / Hjörtur

Niðurstaða dagsins er 14 sæti af 20 sveitum.

Á morgun hefst síðan holukeppnin og þá spilum við á móti GKJ-B og síðan eftir hádegið er það GV-A.

Meiri fréttir á morgun

Bestu kveðjur frá Flúðum

15.08.08 / kl.19.10 / Hjörtur

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband